Eftir talsverðan undirbúning er komið að því að ný útgáfa af viðskiptavefnum líti dagsins ljós. Vinna við endurbætur á vefnum hefur staðið talsvert lengi og við vonum að nýi vefurinn fái góðar viðtökur. Markmiðið með nýjum vef var að bæta yfirsýn notenda og stytta leiðina að upplýsingum um hvert innheimtumál og bæta um leið aðgang að heildarstöðu innheimtumála.
Stefnt er að því að nýi vefurinn fari í loftið aðfararnótt föstudagsins 4. júní. Aðgangs- og lykilorð verða óbreytt og notendur ættu að vera fljótir að átta sig á breytingunum. Gamli vefurinn mun verða aðgengilegur áfram á meðan fólk er að átta sig á breytingunum og tileinka sér nýja vefinn.
Við munum bjóða upp á kynningarnámskeið fyrir vefinn næstu vikurnar fyrir þá sem vilja kynnast vefnum enn betur. Við vonum að skiptin gangi vel og áfallalaust fyrir sig en ef truflanir verða á rekstri vefsins biðjum við ykkur að hafa skilning á því en jafnframt að senda ábendingar og spurningar til ykkar viðskiptastjóra ef eitthvað þarfnast frekari skýringa.
Viðskiptavinir Intrum/Lögheimtunnar sækja um notendaheiti og lykilorð á intrum.is en aðgangsorðin veita þeim aðgang í viðskiptalegum tilgangi að gögnum og upplýsingum um innheimtumál þeirra á viðskiptavefnum.