Sunnudagur 5. september 2010

Fréttir

Fyrirtækjaþjónusta, eitt númer 440 7777 - enn betri þjónusta

Frumskilyrði í þjónustu Intrum er að veita viðskiptavinum greiðan aðgang að upplýsingum og skjót svör um stöðu eða úrlausn mála. Til að bæta þennan þátt enn frekar hefur Intrum hleypt af stokkunum sérstakri Fyrirtækjaþjónustu. Sími Fyrirtækjaþjónustu er 440 7777 þar sem breiður hópur starfsmanna er reiðubúinn að svara fljótt og örugglega fyrirspurnum um einstök innheimtumál, málaskráningu, viðskiptavef, aðstoða við uppgjör og fleira í þeim dúr.

Allir viðskiptavinir hafa aðgang að Fyrirtækjaþjónustu virka daga á milli klukkan 9 og 16. Netfang Fyrirtækjaþjónustu er 4407777@intrum.is

Nýr viðskiptavefur í loftið - fjölmargar nýjungar

NýrEftir talsverðan undirbúning er komið að því að ný útgáfa af viðskiptavefnum líti dagsins ljós. Vinna við endurbætur á vefnum hefur staðið talsvert lengi og við vonum að nýi vefurinn fái góðar viðtökur. Markmiðið með nýjum vef var að bæta yfirsýn notenda og stytta leiðina að upplýsingum um hvert innheimtumál og bæta um leið aðgang að heildarstöðu innheimtumála.

Richard Branson tekur ábyrga áhættu

Meðal efnis í 1. tölublaði 2009 af Intrum Magazine er viðtal við frumkvöðulinn og ævintýramanninn Richard Bransson.  Farið er vítt og breitt í umfjöllun í viðtalinu en Bransson segir nú meiri þörf en áður á öflugum frumkvöðlum.  Hann segir jafnframt að áhrif kreppunnar hefðu orðið minni ef menn hefðu unnið heimavinnuna sína betur varðandi mat á áhættu.

Reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar

Viðskiptaráðherra undirritaði nýlega reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar á grundvelli innheimtulaga nr. 95/2008 sem tóku gildi 1. janúar sl. Þú getur kynnt þér reglugerðina og helstu atriði sem kröfuhafar þurfa að hafa í huga varðandi hana og útsendingu innheimtuviðvörunar í grein Sigurðar Arnars Jónssonar forstjóra Intrum á Íslandi hér