Sunnudagur 5. september 2010

Starfsmenn

Hjá Intrum á Íslandi og Lögheimtunni starfa u.þ.b. 150 starfsmenn um allt land sem gera fyrirtækið það öflugasta á sínu sviði hér á landi. Valinn maður er í hverju rúmi en hjá fyrirtækinu starfa um 80% háskólamenntaðir starfsmenn, þar af flestir á sviði viðskipta og lögfræði.

Mikið er lagt upp úr því að byggja upp góðan starfsanda og sterka liðsheild. Innan fyrirtæksins starfar kröftugt starfsmannafélag sem leggur sitt af mörkunum með frísklegum uppákomum.

Fyrirtækið hefur verið í örum vexti og hraðri uppbyggingu síðustu ár og góðan árangur Intrum ber því ekki síst að þakka kröftugum og áhugasömum hópi starfsmanna sem hefur lagt á sig mikla vinnu og skilað fyrirtækinu sterkri markaðsstöðu.

Upplýsingar um starfsmenn er hægt að fá í síma: 440-7000