Námskeiðin byrja öll kl 09:15 og eru öll námskeiðin einn klukkutími í senn nema námskeiðin Lögfræði sem eru u.þ.b. þrír klukkutímar. Verð fyrir hvert námskeið er 5.900 kr. en 10.900 kr. fyrir Lögfræðinámskeiðið. Innifalið í því er kennsla, kennslugögn og kaffi. Viðskiptavinir Intrum njóta ákveðinna sérkjara og hvetjum við áhugasama til þess að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.
Kennt er í nýjum kennslusal hjá Intrum á Laugavegi 99. Komið er í mótttöku Intrum og þaðan er þátttakendum svo vísað í kennslusal sem er á neðstu hæð hússins.
Skráning fer fram hér á vefnum og bendum við á að mikilvægt er fyrir þá sem vilja taka þátt í námskeiðum okkar að láta skrá sig.