Sunnudagur 5. september 2010

Greiðendur

Hefur þú fengið innheimtubréf frá Intrum vegna ógreidds reiknings? Þá hefur kröfuhafinn gert ráð fyrir að fá þessa peninga greidda en án árangurs og hann hefur því leitað til okkar eftir aðstoð.

Oft er erfitt að láta enda ná saman og við skiljum það mæta vel. Við gerum okkar besta til sinna okkar starfi á sanngjarnan hátt og með lágmarks kostnaði. Við leggjum mikla áherslu á jákvæð samskipti.

Það er klárlega alltaf best að bregðast fljótt við innheimtubréfi frá Intrum og nýta sér þær leiðir sem eru í boði. Hafðu samband við okkur sem fyrst eftir að þú færð innheimtubréf - það er auðveldast að leysa málið á fyrstu stigum og kröfuhafar vilja vita sem fyrst ef greiðandi er í greiðsluvandræðum og sýna því þá jafnan skilning.

Á greiðendavefnum, ekkigeraekkineitt.is er hægt að skoða mál sem komin eru í innheimtu. Þar er hægt að greiða með korti eða semja um að skipta greiðslum, bæði á greiðslukort eða að fá greiðsluseðil mánaðarlega. Þú ættir að hafa fengið notendanafn og lykilorð sent sem rafrænt skjal í heimabankann þinn. Ef þú finnur það ekki geturðu sótt um nýtt lykilorð á forsíðu vefsins sem er þá sent í heimabankann þinn.

Greiðendaþjónusta Intrum er opin á milli 9 og 16. Skrifstofur okkar eru á 10 stöðum um land allt og starfsfólk okkar gerir sitt besta til að aðstoða alla sem til okkar leita. Sími þjónustuversins er 440 7700.

Hér eru nokkur góð ráð

  1. Það er alltaf best að bregðast fljótt við og greiða skuldina þannig að komist sé hjá frekari innheimtukostnaði. 
  2. Ef þig vantar nánari upplýsingar um innheimtumál getur þú haft samband og við munum leggja okkur fram við að aðstoða þig.
  3. Ef þú getur ekki greitt skuldina í einu lagi er oftast hægt að gera greiðslusamkomulag.  Ef þú greiðir samkvæmt samkomulagi hækkar innheimtukostnaður skuldarinnar ekki.
  4. Ef þú átt von á peningum fljótlega getur þú oftast fengið greiðslufrest.  Ef þú greiðir innan tímamarka hækkar innheimtukostnaður skuldarinnar ekki.
  5. Ef þú telur þig eiga í alvarlegum greiðsluvanda mælum við með að þú hafir samband við Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna og fáir ráðgjöf um möguleg úrræði. 

En hvað sem þú gerir - ekki gera ekki neitt