
Innheimtuskóli Intrum býður upp á fjölbreytta fræðslu um stýringu viðskiptakrafna og innheimtu vanskilakrafna.
Markmið með Innheimtuskóla Intrum er að bjóða viðskiptavinum upp á vettvang til að fræðast á aðgengilegan hátt um flesta þætti sem snúa að viðskiptakröfum og meðferð þeirra. Innheimtuskólinn býður upp á fjölbreytt námsefni sem veitir betri innsýn í ýmsa þætti s.s meðferð viðskiptakrafna, viðskiptavefinn, ferlið við lögfræðiinnheimtu og margt fleira.
Með Innheimtuskólanum vonumst við til að geta sinnt þörfum viðskiptavina okkar enn betur, auðveldað þeim samskiptin við starfsfólk okkar, tryggt að samræmd vinnubrögð séu ávallt notuð og aukið færni og þekkingu starfsmanna sem námskeiðin sækja.
Með virkri fræðslu sem tekur mið af þörfum viðskiptavina og hlutverki fyrirtækisins viljum við stuðla að því að starfsfólk samstarfsfyrirtækja okkar öðlist betri þekkingu og tækifæri til að nýta hæfileika sína og samstarfið til fulls
Námskeiðin byrja öll kl 09:15 og eru öll námskeiðin einn klukkutími í senn nema námskeiðin Lögfræði sem eru u.þ.b. þrír klukkutímar. Verð fyrir hvert námskeið er 5.900 kr. en 10.900 kr. fyrir Lögfræðinámskeiðið. Innifalið í því er kennsla, kennslugögn og kaffi. Viðskiptavinir Intrum njóta ákveðinna sérkjara og hvetjum við áhugasama til þess að hafa samband við okkur til að fá frekari upplýsingar.
Kennt er í nýjum kennslusal hjá Intrum á Laugavegi 99. Komið er í mótttöku Intrum og þaðan er þátttakendum svo vísað í kennslusal sem er á neðstu hæð hússins.
Skráning fer fram hér á vefnum og bendum við á að mikilvægt er fyrir þá sem vilja taka þátt í námskeiðum okkar að láta skrá sig.