Sunnudagur 5. september 2010

Kröfuhafar

Stjórnendur fyrirtækja gera kröfur um góðan árangur, skilvirkni og umfram allt traust og góð samskipti. Samstarf við Intrum hefur skilað fjölda kröfuharðra fyrirtækja og stofnana bættum árangri með mun minni tilkostnaði og fyrirhöfn. Intrum byggir ráðgjöf sína á kunnáttu og þekkingu sem hefur myndast í þjónustu við á þriðja þúsund fyrirtækja og stofnanir.

Tímasparnaður og aukin þægindi eru meðal ástæðna þess að viðskiptavinir velja Intrum til samstarfs við innheimtu á vanskilakröfum. Breytt forgangsröðun hjá greiðendum og bætt greiðsluhegðun er hluti af þeim ávinningi sem viðskiptavinir njóta af samstarfi við Intrum. Reynslan sýnir að vanskilakröfum fækkar og tíminn sem fer í innheimtustarf minnkar.

Greiðendur geta lent í tímabundnum greiðsluerfiðleikum og skiptir þá höfuðmáli að bregðast við af festu og tryggja greiðslu kröfunnar. Mikilvægt er að haga innheimtuaðgerðum á þann hátt að góðir viðskiptavinir eigi afturkvæmt í viðskipti þrátt fyrir tímabundin vanskil. Hjá Intrum er virðing og kurteisi leiðarljósið í öllum samskiptum við greiðendur. Þú getur fækkað útistandandi kröfum með því að taka fastar á innheimtumálunum.

Ávinningur

  • Markviss stjórnun viðskiptakrafna og skarpari sýn á stöðu þeirra og þróun
  • Skilvirk innheimta, aukið lausafé og lægri fjármagnskostnaður
  • Minni vinna við utanumhald og innheimtu vanskilakrafna
  • Sveigjanleiki; mikilvægi viðskiptavina haft að leiðarljósi við val á innheimtuleiðum
  • Rafræn samskipti við öll helstu hugbúnaðarkerfi og greiðsluseðlaþjónustu banka og sparisjóða
  • Persónulegri samskipti við viðskiptavini, aukinn tími og betri þjónusta
  • Aðgangur að reynslu starfsmanna og námskeiðum í Innheimtuskóla Intrum

Forvarnir

Mikilvægt er að hafa uppi virkt ferli til að áhætta vegna útlána sé í lágmarki. Í því felst meðal annars:

  • Umsóknarferli fyrir lánsviðskipti nýrra viðskiptavina
  • Meta greiðsluhæfi og áhættu umsækjanda
  • Flokka viðskiptavini eftir áhættu og mikilvægi
  • Ákveða greiðslukjör, lánahámörk og innheimtuleiðir eftir viðskiptavinaflokkum
  • Virkt eftirlit með greiðsluhegðun