Laus störf
Viltu vera í góðu liði?
Intrum á Íslandi er hluti alþjóðlega innheimtufyrirtækisins Intrum Justitia, sem er leiðandi fyrirtæki í Evrópu á sviði markvissrar stýringar viðskiptakrafna (Credit Management Services). Á heimsvísu meðhöndlar Intrum milljónir mála á hverju ári fyrir fyrirtæki og stofnanir. Um 3000 starfsmenn vinna hjá Intrum í 22 Evrópulöndum, en jafnframt hefur fyrirtækið yfir 120 umboðsskrifstofur víða um heim.
Hjá Intrum á Íslandi starfa u.þ.b. 150 starfsmenn um allt land. Intrum býður fyrirtækjum og stofnunum upp á heildarlausnir á sviði innheimtumála sem m.a. samanstanda af INKASSO, Kröfuvakt, Millilandainnheimtu, Lögfræðiinnheimtu, Vanskilaupplýsingum og VSK endurgreiðslu.
Notkun upplýsingatækni er ríkur þáttur í starfsemi Intrum og grundvöllur þeirrar hagræðingar sem fyrirtækið hefur innleitt í innheimtustarfsemi. Þannig býður Intrum viðskiptavinum sínum aðgang að öflugum viðskiptavef sem gerir þeim kleift að fylgjast betur með framgangi innheimtunnar.
Nánari upplýsingar veitir mannauðssvið (storf@intrum.is)
Intrum á Íslandi leitar eftir þjónustufulltrúa í lögheimtuvinnslu fyrirtækisins á Akureyri.
Meðal verkefna er almenn vinnsla mála í lögfræðiinnheimtu. Við leitum að skipulögðum, öguðum og talnaglöggum starfsmanni sem er nákvæmur í starf og hefur áhuga á að starfa sem hluti af öflugum hópi. Reynsla af innheimtustörfum eða ritarastörfum af lögfræðistofu æskileg.
Um 100% framtíðarstarf er að ræða.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg D Hjaltadóttir, ráðningarstjóri Intrum á Íslandi í síma 440 7122.
Sækið um með því að fylla út umsóknareyðublaðið og senda með viðeigandi viðhengi.
Umsóknarfrestur til og með 12. september.
Intrum óskar eftir ráðgjafa á Fyrirtækjasvið. Í starfinu felst ráðgefandi sala á þjónustulausnum Intrum, samskipti við viðskiptavini, greining og ráðgjöf varðandi meðferð viðskiptakrafna, auk tilboðs-og samningagerða. Viðkomandi þarf að búa yfir söluhæfileikum, frumkvæði, jákvæðni og drifkrafti. Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð og virka þáttöku í teymisvinnu. Krafa er gerð um reynslu af sambærilegum störfum og viðskiptafræðimenntun eða sambærileg gráða er kostur en ekki skilyrði. Um 100% framtíðarstarf er að ræða.
Við leitum að öflugum starfsmönnum til að taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins á Austulandi, Norðurlandi eystra, Norðurlandi vestra, Vesturlandi, Vestfjörðum, Suðurlandi og Suðurnesjum.
Meðal verkefna eru ábyrgð á mætingum í héraðsdóma og málflutningur vegna innheimtumála. Umsjón og ábyrgð á framhaldssölum og samskipti við mætingaraðila. Við leitum eftir ákveðnum og drífandi einstaklingi sem er metnaðarfullur og sjálfstæður í starfi og býr yfir hæfileikum í samskiptum.
Ekki er um ákveðið starf að ræða heldur verið að leita almennt eftir umsóknum í störf hjá Lögheimtunni/Pacta.
Við biðjum þig að hafa samband við okkur og endurnýja umsókn þína ef þú heyrir ekki frá okkur vegna starfsins innan þriggja mánaða.
Við leitum að lögfræðingi, helst með lögmannsréttindi. Meðal verkefna eru ábyrgð á mætingum fyrir héraðsdómi, ráðgjöf og málflutningur. Umsjón og ábyrgð á fullnustugerðum og samskipti við mætingaraðila Við leitum eftir ákveðnum og drífandi einstaklingi sem er metnaðarfullur og sjálfsstæður í starfi og býr yfir hæfileikum í samskiptum. er um ákveðið starf að ræða heldur verið að leita almennt eftir umsóknum í störf hjá Lögheimtunni/Pacta.
Við biðjum þig að hafa samband við okkur og endurnýja umsókn þína ef þú heyrir ekki frá okkur vegna starfsins innan þriggja mánaða.