Sunnudagur 5. september 2010

Siðareglur

Kurteisi og háttvísi

Intrum Justitia styðst við strangar siðareglur sem gilda um starfsemi þess hvar sem er í heiminum. Þannig er mikil áhersla lögð á fagleg vinnubrögð í sérhverju tilliti en þannig tryggir Intrum að allir viðskiptavinir fái ætíð bestu mögulegu þjónustu og greiðendur njóti ávallt virðingar í öllum samskiptum.

  • Virða skal lög og reglur í hvívetna í góðu samstarfi við yfirvöld.
  • Halda skal viðskiptavinum upplýstum um gang mála.
  • Algjörs trúnaðar skal gætt um upplýsingar sem fram koma við meðferð einstakra mála.
  • Ávallt skal borin virðing fyrir þeim sem skuldar.Viðskiptum skal hagað á þann hátt að fyrirtækið njóti virðingar og trausts á sviði innheimtustarfsemi.
  • Mál skulu rekin hratt en vandlega.
  • Fjármunum viðskiptavina skal haldið aðgreindum frá öðru rekstrarfé.