Sunnudagur 5. september 2010

Alþjóðaskrifstofur

Innheimtur um allan heim

Intrum á Íslandi er hluti af alþjóðlega innheimtufyrirtækinu Intrum Justitia, sem er eitt stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu. Intrum Justitia var stofnað árið 1923 í Svíþjóð og hefur náð mjög góðum árangri um alla Evrópu sem byggist ekki síst á þeirra aðferðafræði að koma ávallt fram við greiðendur af kurteisi og virðingu.

Hjá Intrum Justitia starfa meira en 3.100 starfsmenn í útibúum í 24 Evrópulöndum og fyrirtækið er með ráðandi markaðshlutdeild á flestum svæðum sem það rekur starfsemi. Auk þess er Intrum Justitia í samstarfi við yfir 120 umboðskrifstofur um allan heim.

Intrum Justitia styðst við strangar siðareglur sem gilda um starfsemi þess hvar sem er í heiminum.