Sunnudagur 5. september 2010

Fair Pay - Please

Gula spjaldið og Fair pay – please er tákn Intrum Justitia um allan heim. Fair pay – please vísar til þess að sanngjörn greiðsla sé lykilatriði í arðsömum viðskiptasamböndum.

Reikningsviðskipti fela í sér gagnkvæman samning um að seljandi skili umsamdri vöru eða þjónustu til kaupanda sem greiðir umsamið verð á réttum tíma. Ef greiðsla er ekki innt af hendi má segja að "leikreglur" samningsins hafi verið brotnar.

Fair pay – please hugtakið gengur út á hvatningu til kaupanda og seljanda um að standa við gerða samninga og byggja þannig upp gagnkvæmt traust og arðbær viðskipti til frambúðar.

Intrum gefur gula spjaldið
Í íþróttum er gula spjaldið aðvörun til þess sem gerist brotlegur. Á sama hátt fær sá sem ekki hefur greitt gjaldfallinn reikning gula spjaldið frá Intrum. Gula spjaldið gefur þó jafnframt til kynna að viðkomandi hafi enn tækifæri til að bæta ráð sitt.

Þeir eru fjölmargir sem hafa fengið innheimtubréf frá Intrum á undanförnum árum. Ástæðurnar fyrir því geta verið fjölmargar en vanskil geta valdið viðskiptavinum okkar umtalsverðri fyrirhöfn. Intrum vinnur markvisst að því að kynna starfsemi sína fyrir almenningi og hvetja greiðendur til að bregðast jákvætt við innheimtubréfum og gera hreint fyrir sínum dyrum. Skilvísi er allra hagur og stuðlar að lægra verði á vörum og þjónustu og traustara atvinnulífi.