Það getur komið fyrir alla að fá bréf frá Intrum. Nú er enn auðveldara fyrir viðskiptavini Intrum (greiðendur) að fá allar upplýsingar um mál í innheimtu.
Á vefnum ekkigeraekkineitt.is geta greiðendur nú fengið allar viðeigandi upplýsingar um sín mál og stöðu þeirra, innborganir og fleira.
Þar er enn fremur að finna algengar spurningar og svör um framvindu innheimtumála. Á vefnum er auðvelt að óska eftir nánari upplýsingum um einstök mál og óska eftir greiðslufresti eða að gera greiðslusamkomulag.
Aðgangsorðin bíða í netbanka hvers greiðanda
Intrum nýtir sér birtingakerfi bankanna fyrir rafræn skjöl til að birta aðgangsorð að greiðendavefnum. Sama kerfi birtir reikningaupplýsingar og launaseðla fjölmargra fyrirtækja þannig að hámarksöryggis er ávallt gætt við dreifingu aðgangsupplýsinganna.
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna leggur til góð ráð á vefinn um hvernig megi ná betri tökum á fjármálunum.
Lykilatriðið er samt alltaf það sama - ekki gera ekki neitt