Sunnudagur 5. september 2010

Fyrirtækjaþjónusta, eitt númer 440 7777 - enn betri þjónusta

Frumskilyrði í þjónustu Intrum er að veita viðskiptavinum greiðan aðgang að upplýsingum og skjót svör um stöðu eða úrlausn mála. Til að bæta þennan þátt enn frekar hefur Intrum hleypt af stokkunum sérstakri Fyrirtækjaþjónustu. Sími Fyrirtækjaþjónustu er 440 7777 þar sem breiður hópur starfsmanna er reiðubúinn að svara fljótt og örugglega fyrirspurnum um einstök innheimtumál, málaskráningu, viðskiptavef, aðstoða við uppgjör og fleira í þeim dúr.

Allir viðskiptavinir hafa aðgang að Fyrirtækjaþjónustu virka daga á milli klukkan 9 og 16. Netfang Fyrirtækjaþjónustu er 4407777@intrum.is