Meðal efnis í 1. tölublaði 2009 af Intrum Magazine er viðtal við frumkvöðulinn og ævintýramanninn Richard Bransson. Farið er vítt og breitt í umfjöllun í viðtalinu en Bransson segir nú meiri þörf en áður á öflugum frumkvöðlum. Hann segir jafnframt að áhrif kreppunnar hefðu orðið minni ef menn hefðu unnið heimavinnuna sína betur varðandi mat á áhættu.
Jafnframt er fjallað um hvernig Intrum hefur aðstoðað sjúkrahús í Bretlandi við að bæta fjárstreymi. Þetta ásamt mörgu öðru fróðlegu efni er að finna í blaðinu.
Smellið á myndina hér að neðan til að sækja eintak af blaðinu á PDF sniði.