Eins og kunnugt er undirritaði viðskiptaráðherra í gær nýja reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar á grundvelli innheimtulaga nr. 95/2008 sem tóku gildi 1. janúar sl.
Með setningu laganna og reglugerðarinnar eru ákveðin þáttaskil í innheimtustarfsemi en hingað til hefur ekki verið til sérstakur lagarammi utan um þá starfsemi. Intrum á Íslandi hefur frá upphafi verið fylgjandi setningu innheimtulaga. Fyrirtækið starfar eftir samræmdum siðareglum Intrum Justitia sem rekur starfsemi í 22 löndum í Evrópu, en í flestum þessara landa hefur sérstakt regluverk um innheimtustarfsemi verið í gildi um alllangt skeið.
Reglugerðin hefur í för með sér nokkra lækkun á verðskrá innheimtukostnaðar greiðenda og í einhverjum tilvikum getur þurft að endurskoða samninga okkar við kröfueigendur. Ráðgjafar okkar munu á næstu dögum yfirfara alla viðskiptasamninga og verkferla með tilliti til forsendna reglugerðarinnar og í framhaldi af því vera í sambandi ef breytinga er þörf. Að sjálfsögðu er þér jafnframt velkomið að hafa samband við okkur.
Skv. 7 gr. innheimtulaganna er nú lögbundið að eftir gjalddaga, eða gjalddaga sé hann tilgreindur, verður kröfueigandi að senda greiðanda skriflega viðvörun um að vænta megi frekari innheimtuaðgerða og gefa greiðanda tíu daga til að greiða áður en til slíkra aðgerða er gripið. Innheimtuviðvörun þessi þarf að uppfylla ákveðin skilyrði til að teljast lögleg. Sé skilyrðum ekki fullnægt getur það haft kostnað í för með sér fyrir kröfueiganda og tafið fyrir því að krafa greiðist. Því viljum við sérstaklega benda á mikilvægi þess að þær ítrekanir sem viðskiptavinir okkar senda til greiðenda áður en kröfur koma til innheimtu uppfylli öll þau skilyrði sem lögin setja. Meðfylgjandi er tillaga að innheimtuviðvörun sem við teljum uppfylla öll skilyrði laganna og má nota til grundvallar við breytingar á ykkar ítrekunum ef þess er þörf.
Innleiðing reglugerðarinnar mun hafa talsverð áhrif á starfsemi Intrum á Íslandi ehf. og ljóst að við þurfum að takast á við fjölda vandasamra verkefna í kjölfar innleiðingar hennar. Intrum mun bjóða viðskiptavinum sínum að senda út innheimtuviðvörun í nafni kröfuhafa á svokölluðum “lokum” þ.e. bréfum sem ekki er pakkað í umslag, heldur er þau límd á köntunum og rifgötuð. Auk þess að vera umhverfisvænt og innihalda minni pappír býður þessi lausn upp á skemmtilega möguleika við aðlögun og útlit að óskum kröfueiganda auk þess að uppfylla allar kröfur innheimtulaga um innheimtuaðvörunina.
Það er okkar trú að með góðu samstarfi við kröfuhafa, aðhaldi í rekstri og samstilltu átaki getum við aðlagað starfsemi okkar nýju umhverfi. Efnahagsástandið og umbyltingar síðustu mánaða hafa komið mjög illa við fjölda fyrirtækja og innheimtur krafna orðið mun erfiðari en áður. Það er hins vegar lykilatriði í þessari stöðu að viðhalda fjárstreymi fyrirtækjanna. Þar viljum við aðstoða eftir fremsta megni og vinna með okkar viðskiptavinum og greiðendum að bestu mögulegu niðurstöðu allra mála. Ef einhverjar spurningar vakna vegna þessa skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur.
Kveðja
_______________________
Sigurður Arnar Jónsson
Forstjóri